Karellen
news

Fréttir fyrir sumarfrí

15. 06. 2018

Nokkrir starfsmenn hætta hjá okkur í þessari viku. Síðasti dagurinn hennar Líliu var á þriðjudaginn, síðasti dagurinn hennar Argyro var í gær og í dag er síðasti dagurinn hennar Guðdísar.

Við þökkum þeim kærlega fyrir samstarfið og óskum þeim alls hins besta í þeim verkefnum sem þær eru að fara að taka sér fyrir hendur.

Eftir daginn í dag erum við komin í sumarfrí og er leikskólinn lokaður í fjórar vikur, fyrsti opnunardagurinn eftir sumarfrí er 16.júlí.

Áætlað er að nýja húsið okkar komi um næstu mánaðarmót og verður vonandi hægt að fara að nota húsið fljótlega eftir að við komum úr sumarfríi, en því miður er engin umsókn um þær tvær starfsmannastöður sem við höfum verið að auglýsa þannig að á meðan að ekki fæst starfsfólk er ekki hægt að taka inn fleiri börn, við verðum bara að vona að einhver umsókn berist í sumarfríinu. ;-)

Hafið það nú sem allra best í sumarfríinu og svo sjáumst við endurnærð, kát og hress þegar við opnum aftur.

© 2016 - 2024 Karellen