Karellen
news

Takk fyrir frábæran dag

31. 05. 2018

Í dag var vor- og útskriftarhátíðin okkar þar sem þrír elstu nemendurnir okkar voru að útskrifast og óskum við þeim innilega til hamingju.

Við fengum Lúlla löggubangsa í heimsókn sem sagði okkur frá mikilvægi þess að nota bílbeltin einnig komu tvær aðrar löggur sem skoðuðu faratækin okkar og settu á þau fína límmiða.

Einnig kom Fanney Ólöf til okkar með hest, þannig að allir sem vildu fengu að fara á hestbak.

Við viljum þakka öllum hjartanlega fyrir komuna og frábærar veitingar sem komu frá foreldrum.



© 2016 - 2024 Karellen