Karellen
news

​Deildarstjóra í 100% starf vantar í tímabundna afleysingu

18. 01. 2021

Deildarstjóra í 100% starf vantar í tímabundna afleysingu í Heilsuleikskólann Kærabæ á Kirkjubæjarklaustri. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Leitað er eftir drífandi og metnaðarfullum einstaklingum til starfa í tímabundna afleysingu. Þarf að geta byrjað sem fyrst og starfað til 1. júlí 2021 í Heilsuleikskólann Kærabæ sem er staðsettur á Kirkjubæjarklaustri. Heilsuleikskólinn Kæribær er tveggja deilda leikskóli með heilsdagsrými fyrir börn á aldrinum eins til sex ára.

Menntunar og hæfniskröfur

Leikskólakennaramenntun

Hæfni í mannlegum samskiptum og frumkvæði í starfi.

Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.

Stundvísi og góð ástundun

Hreint sakavottorð

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Umsóknarfrestur er til 12. febrúar 2021

Umsóknum skal skilað til skólastjóra Heilsuleikskólans Kærabæjar á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem finna má á heimasíðu leikskólans http://kaeribaer.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn

Með umsókn skal fylgja ferilskrá, meðmælendur og afrit af leyfisbréfi auk sakavottorðs.

Umsóknir má einnig senda á netfang skólans leikskoli@klaustur.is eða í pósti merktar, Heilsuleikskólinn Kæribær, Skaftárvellir 5a, 880 Kirkjubæjarklaustur.

Nánari upplýsingar um leikskólann má finna á heimsíðu leikskólans http://kaeribaer.leikskolinn.is og hjá skólastjóra í síma 487-4803 eða 863-7546.

Hvetjum bæði karla og konur til að sækja um skemmtilegt starf.

Leikskólastjóri Guðrún Sigurðardóttir

© 2016 - 2024 Karellen