Karellen
news

​Jólaljósin kveikt föstudaginn 24. nóvember kl. 10:30

21. 11. 2017

Jólaljósin kveikt föstudaginn 24. nóvember kl. 10:30

Jólaljósin verða kveikt á jólatrénu fyrir framan félagsheimilið Kirkjuhvol á Kirkjubæjarklaustri kl. 10.30 föstudaginn 24. nóvember nk. Börnin í leikskólanum Kærabæ og Kirkjubæjarskóla syngja nokkur jólalög og fyrsti jólasveinninn lætur sjá sig. Heitt kakó verður í boði Icelandair Hótel Klaustur

Allir velkomnir,

Sandra Brá Jóhannsdóttir, sveitarstjóri

© 2016 - 2024 Karellen