Karellen
news

​Starfsfólk vantar til starfa í Heilsuleikskólann Kærabæ á Kirkjubæjarklaustri fyrir næsta skólaár.

07. 06. 2018

Leitað er eftir drífandi og metnaðarfullum einstaklingum til starfa á Heilsuleikskólann Kærabæ sem er staðsettur á Kirkjubæjarklaustri.

Kæribær er leikskóli með heilsdagsrými fyrirbörn á aldrinum eins til sex ára.

Umsóknarfrestur er til 15. júlí 2018

Störfin sem um ræðir eru:

  • Tvo leikskólakennara í 100 % starf.
  • Starfið er laust 15. júlí 2018

Menntun og hæfniskröfur

Leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari.

Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.

Hæfni í mannlegum samskiptum

Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður

Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.

Hreint sakavottorð

o Vakin er athygli á því að ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur.

o Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi FL. og Sambands íslenskra Sveitarfélaga eða viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknum skal skilað til skólastjóra Heilsuleikskólans Kærabæjar á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem finna má á heimasíðu leikskólans http://kaeribaer.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn

Umsóknir má einnig senda á netfang skólans leikskoli@klaustur.is eða í pósti merktar, Heilsuleikskólinn Kæribær, Skaftárvellir, 880 Kirkjubæjarklaustur.

Nánari upplýsingar má finna á heimsíðu leikskólans http://kaeribaer.leikskolinn.is og hjá skólastjóra í síma 487-4803 eða 863-7546.

  • o Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna umsóknum sem ekki uppfylla þau skilyrði sem til þarf.

Hvetjum bæði karla og konur til að sækja um skemmtileg störf.

Leikskólastjóri

Guðrún Sigurðardóttir

© 2016 - 2024 Karellen