Karellen
news

​Vorhátíð og útskrift elstu barnanna 2018

28. 05. 2018

Fimmtudaginn 31. maí ætlum við að gera okkur glaðan dag hér á leikskólanum.

Þá verður vor- og útskriftarhátíðin okkar.

Margt verður sér til gamans gert.

Um morguninn mega börnin koma með hjól, traktora eða sparkbíla.

DAGSKRÁ

Kl. 13:30 kemur lögreglan og mun skoða reiðhjól barnanna eða önnur farartæki sem þau eiga.

Kl. 14:00 Sýning nemenda leikskólans

Kl. 14:40 útskrift elstu nemenda

Kl. 15:00 veitingar í boði foreldra.

Kl. 15:15 verður hægt að fara á hestbak

Sem fyrr langar okkur hér að fá ykkur foreldrana til að hjálpa börnunum ykkar að útbúa veitingar og koma með að heima. Munið að halda innihaldi sykurs, salts og fitu í lágmarki.

Allir velkomnir, pabbar og mömmur, afar og ömmur, systkinin og sætabrauðsdrengir ;)

Starfsfólk og nemendur Heilsuleikskólans Kærabæjar

© 2016 - 2024 Karellen