Jólaljósin kveikt föstudaginn 24. nóvember kl. 10:30
Jólaljósin verða kveikt á jólatrénu fyrir framan félagsheimilið Kirkjuhvol á Kirkjubæjarklaustri kl. 10.30 föstudaginn 24. nóvember nk. Börnin í leikskólanum Kærabæ og Kirkjubæjarskóla syngja nokkur jólalög og fyrsti jólasveinninn lætur sjá sig. Heitt kakó verður í boði Icelandair Hótel Klaustur
Allir velkomnir,
Sandra Brá Jóhannsdóttir, sveitarstjóri