TÁKN MEÐ TALI |
|
|
|
|
|
|
Tjáningarmátinn tákn með tali er einkum ætlaður börnum sem heyra innan eðlilegra marka en ná ekki að tileinka sér skilning á máli og/eða talmál á hefðbundinn hátt vegna frávika í þroska eða fötlunar. Tekið skal fram að einstaklingar á öllum aldri geta nýtt sér tákn með tali. |
|
|
Náttúruleg tákn. Byggt er á náttúrulegri tjáningu, þ.e. svipbrigðum og látbragði. Þá er talað um náttúruleg tákn. Dæmi: að greiða sér, að borða, að vera heitt/kalt. |
|
Samræmd tákn. Til viðbótar við náttúruleg tákn eru notuð samræmd tákn, oft aðlöguð, fengin að láni úr táknmáli heyrnarlausra. |
|
Regla. Táknin á alltaf að nota með tali - aldrei ein sér. Að öðrum kosti mun barnið ekki fá tækifæri til að tileinka sér talað mál. |
|
Markmið. Stefnt er að því að barnið nái eins mikilli leikni í að nota talmál og nokkur kostur er. TMT er gjarnan hugsað sem tímabundinn stuðningur, eða brú, yfir í talað mál. |
|
Umhverfið. Markviss notkun TMT í umhverfi barnsins, heima, í skóla og annars staðar þar sem barnið dvelur er lykilatriði. |
|
Samvinna. Samvinna viðkomandi aðila þarf að vera mikil og vel samhæfð. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|